Álfur
Le Bumb
Lærdómur
Friday, August 11, 2006
Ég á að vera að lesa. Svona hluti geri ég þegar ég á að vera að lesa:
Afmælisbarn dagsins, hún Steinunn verðandi langamma, gaf okkur þetta fallega rúm.
Næst á dagskrá er ferð í Ikea að kaupa kommóðu fyrir gjafafé verðandi ömmunar úti í Noregi.
Það er ómetanlegt að eiga svona góða að!
Erfitt líf
Wednesday, August 09, 2006
Það er leikskóli ská fyrir neðan íbúðina mína og á honum fá börn sem eru 6 mánaða til 2 ára vistun. Í dag hef ég ekki farið út úr húsi (stefni á gönguferð rétt á eftir) og veit því fyrir víst að eitt ákveðið barn á þessum leikskóla hefur ekki hætt að grenja síðan í morgun. Annað hvort er þetta mjög óhamingjusamt barn, eða að á því eru stundaðar pyntingar, eða það er látið alls afskiptalaust meðan það þenur lungur og orgar út í eitt. Ég gæti líklega þekkt þennan grátur í langan tíma, er orðin svo vön honum. Finnst ekki ólíklegt að gráturinn muni ásækja mig í draumahöll í nótt. Voðalega hlýtur að vera leiðinlegt á þessum leikskóla!
Draumur um straum
Mig dreymdi inntökuprufur hjá kórnum mínum. Þær voru utandyra inni í stórum skógi þar sem kvöldsólin skein appelsínugul inn í rjóður milli hárra trjáa. Bara drengir voru mættir í prufu. Þeir sátu þétt saman á blárri þykkri íþróttahúsdýnu. Svo dóu fimm þeirra. Þá tókum við Kalli, Gunni Þorgils, Einar og Þórir til þess ráðs að brenna líkin og grafa þau í skóginum.
Vondur hýsill
Vefhýsingaraðilinn brást okkur og neitaði öllum um aðgang, netbúslóðarflutningar áætlaðir í kvöld...
Dressið tilbúið
Friday, August 04, 2006
Harpa, bráðum amma, hefur lokið við að prjóna heimferðardress barnsins í bumbunni, það vantar bara tölurnar. Ég er búin að skoða þessa mynd svona um þúsund sinnum, mér finnst þetta svooo sætt.

Flaut
Ég held kannski að einhver hafi verið að flauta á mig og veifa mér á leið minni í vinnuna í morgun. Líklega hélt manneskjan bakvið regndropaþakta bílrúðuna að ég væri einhver önnur - ekki ólíklegt því ég var í skærrauðum barnaregnjakka.
En, ef ég átti að vinka tilbaka: sorrý ég sá ekki inn í bílinn.
En, ef ég átti að vinka tilbaka: sorrý ég sá ekki inn í bílinn.
Með bros á vörum lala
Tuesday, July 25, 2006
Það má nú frá því segja sem löngu var vitað. Yndislegasta fjölskyldan er að flytja nær mér og ófæddu barnabarninu! Það þýðir að mun auðveldara verður að fara i afa og ömmu og bestufrænku/bestafrænda-heimsóknir og að martraðir um Óshlíðina verða úr sögunni.
Gaman er að segja frá góðum hlutum!
Hiksti... oft á dag
Friday, July 21, 2006
Barnið í maganum fær hiksta tvisvar á dag, að minnsta kosti. Þennan hiksta finn ég ekki lengur í kúlunni heldur niðri við lífbeinið. Mjög furðulegt að vera næstum því stanslaust með taktfastan bumbuslátt fyrir neðan buxnastrenginn. Það er auðvitað ekkert nema frábært mál að barnið sé komið í höfuðstöðu - þá ætla ég bara að vona að það haldi sér þannig og snúi sér ekkert við.
Annars fór ég í smá sjóræningjaleik í gær og skoðaði risa seglskip. Það heitir Sedov, en í mínum huga heitir það Svarta Perlan. Hvenær kemur annars þessi langþráða mynd mín í bíó?
I want to ride my bicycle
Thursday, July 20, 2006
Við Kalli fjárfestum í silfurfákum (silfurlituðum ProStyle hjólum)í gær, fengum sinn hvorn á verði eins. Hjólin eru í stíl, eini munurinn er að ég er að mitt er með konustöng. Við tókum smá hjólatúr í gær og í dag fékk hjólið mitt far hingað út á Seltjarnarnesið þar sem ætlunin er að hjóla á því heim eftir vinnu. Ég skammast mín reyndar fyrir það að þurfa að hjóla þessa heimferð hjálmalaus, það finnst mér mjög óþægilegt. Helst vildi ég vera með hjálm bæði á hausnum og maganum... En í kvöld verður farið í hjálmaleit.
Gulla bumbuvinkona mín var að eignast son í gær. Innilega til hamingju með það. Gullusonur verður fyrsta barnið sem fær tengil á síðunni minni. Það eru börn að bruggast í mögum margra vinkvenna minna þessa dagana, stuð.
Eldra

